14.03.2010 17:29
Mývatn Open
Tristan og Biggi á Mývatni í gærdag
Mývatn Open var haldið í gær og skellti Biggi sér þangað með feðgana Tristan og Dyn frá Árgerði. Ekki lék veðrið við knapa þar enn gekk Bigga ágætlega, hafnaði í 6.-7. sæti í stóðhestakeppninni á Tristan.
Tristan með sitt skemmtilega afturfótaskref.
Dynur frá Árgerði í töltkeppninni.
FLEIRI MYNDIR AF TRISTAN OG DYN Á MÝVATNI MÁ SJÁ HÉR
KEA mótaröðin er nú að klárast eða aðeins ein keppni eftir. Síðastliðinn fimmtudag var fimmgangurinn, Biggi fékk Týju frá Árgerði að láni hjá Ásdísi og Gísla og hafnaði í 6.sæti með einkunni 6.26.
Næst og þá síðast ersvo slaktaumatölt og skeið. Einnig eru vormótin að detta á, og má segja að vorið sé hreinlega komið hér í Eyjafirðinum.
Kveðjur úr Litla-Garði & Árgerði