Færslur: 2009 Apríl
19.04.2009 22:55
Fréttir úr dalnum djúpa !
Já kæru hestamenn nú ætlum við að segja ykkur helstu fréttir síðast liðnu daga ! Margt er búið að vera í gangi varðandi undirbúningin á reiðhallarsýningunni á Akureyri um helgina, enn fyrst þetta:
Á páskadag fæddist í Árgerði bleikálótt, tvístjörnótt hryssa undan Kveikju frá Árgerði og Hróð frá Refsstað. Voru þær mæðgur teknar inn og útbúin stía handa þeim inn í hlöðu. Voru þær hýstar tvær fyrstu næturnar enn hafa verið í litlu og sætu hólfi heima í Árgerði.
Væntanleg kynbótahryssa fædd !
Nú 15.apríl kastaði Sónata frá Litla-Hóli rauðskjóttum hesti og er hann undan Gangster frá Árgerði (u. Hágang og Glæðu) Voru þau hýst fyrstu nóttina en eru nú í hólfi með Kveikju.
Litli skjóni nýfæddur
Ram 2500 var keyptur í vikunni til þess að Biggi komist ferða sinna með hrossin í nýju kerrunni.
Nýi bíllinn og kerran við.
Þó nokkur tími fór í vikunni í undibúning fyrir Fákar og fjör sýningunni um helgina. Biggi fór með fjögur hross og það voru: Dimmbrá frá Egilsstaðabæ í klárhryssuhópinn, Hremmsa frá Litla-Garði í alhliðahryssur, Blakk frá Árgerði í skeið & Kiljan frá Árgerði í ungir stóðhestar.
Hryssurnar sýndust báðar ljómandi vel og mikil spenna var í skeiðinu, þar sem Biggi var með besta tímann þangað til tveir síðustu hestarnir bættu um betur og höfnuðu félagarnir Biggi og Blakkur því í 3.sæti með tímann 5.36, Elli Sig og Hnikar frá Ytra-Dalsgerði með 5.34 og Gummi Björgvins með Ás frá Ármóti sigraði með glæsisprett á tímanum 5.31.
Blakkur gamli klikkar ekki ;)
Kiljan stóð sig einnig mjög vel, sýndi góð tilþrif á öllum gangi enn er þó sérstaklega mjúkur og skemmtilegur á tölti. Hann virðist hafa vakið mikla athygli þar sem að það er þegar farið að panta undir hestinn.
Kiljan á brokki - óskýr mynd Hremmsa á tölti
Dimmbrá frá Egilsstaðabæ
Enn við biðjum að heilsa að sinni !
Kveða úr Litla-Garði
15.04.2009 18:16
Ný síða ! :)
Loksins, loksins eru Litli-Garður og Árgerði komin með löngu tímabæra heimasíðu ! Heimasætan á bænum, hún Nanna Lind á allan heiðurinn af þessari síðu, þar sem gömlu settin á bæjunum eru ekki svo mikil tölvugúrú.
Hér ætlum við að leyfa ykkur að fylgjast með hestalífinu í Litla-Garði & Árgerði.
Vonum að þið njótið :)
Kv. Herdís & Biggi.
- 1