Færslur: 2014 September
28.09.2014 22:15
Gangsterinn komin heim.
18.09.2014 09:55
Ræktun hesta og kinda skoðuð :)
Sænsku konurnar eru hér að skoða ættartréð stóra en að mestu má rekja alla okkar ræktun til
Snældu frá Árgerði. Ættbogi hennar er
orðin afar stór og myndarlegur. Saga Snældu-Blesa vakti athygli en það má með
sanni segja að brasið með hann er hann fótbrotnaði og var hjúkrað til heilsu
svo hann gæti sinnt merum hafi aldeilis skilað sér þar sem að hann er á bak við
okkar allra sterkustu ræktunarhross í dag eins og Elvu frá Árgerði Glæðu frá Árgerði og afkvæmi hennar þau
Glettingu, Gloríu,Gangster, Glym, og nýjustu stjörnuna okkar hana Mirru
Glymsdóttir frá Litla-Garði og áfam mætti lengi telja.
Einnig vakti athygli mynd af Heklu Pennadóttir frá Árgerði .
Hún var hreinræktaður Árgerðingur og eru ekki allir sem vita að hún er einmitt móðir hinnar miklu
gæðingamóðir Óskar frá Brún. Afkvæmi Óskar
eru ekki af verri endanum og má þar nefna fyrstu verðlaunahestana Óð, Ofsa, Óm,
Hljóm, Óskahrafn og Höld frá Brún.
Virkilega gaman að fara svona oní saumana og sjá hvað framræktunin er gríðarleg frá gamla höfðingjanum honum Magna í Árgerði en stóðhesturinn Penni frá Árgerði er einmitt langafi þessara hesta. Það er draumur hvers ræktanda þegar að ættboginn vex og dafnar með slíkum árangri :)
En að allt öðru, fyrstu göngur eru búnar og voru skil á fé góð, Þó eru nokkrar skjátur enn eftir að skila sé heim. Vel var mætt í réttir hjá okkur og vorum við svo heppin að hafa litlu ömmu og afastelpuna í heimsókn;)
Viktoría Röfn, litla prinsessan og langamma "Dísa" í rettunum:)
Sindri Snær með vini sínum og nágranna Óla í Hvassafelli. Og að sjálfsögðu átti hann þennan myndar hrút.
Dísa Viktoría, Heiður Nanna og Breki tóku sig vel út í réttum :)
Andri ánægður með fenginn :)
Skildi þetta vera lífgimbur?
Einhver þarf að sjá um bókhaldið :)
Það er ómetanlegt að hafa góða aðstoð í réttunum, Nanna systir Bigga og Andri tengdasonur hennar létu ekki sitt eftir liggja :)
Stundum er gott að hjálpast að.
Látum þetta duga í bili, gaman að sjá hveru margir eru duglegir að fylgjast með okkur hér á síðunni, það hvetur mann til að setjast við tölvuna og skrifa fréttir: af daglegu amstri.
Lifið heil!
02.09.2014 11:41
Bæjarkeppni
- 1