Færslur: 2016 Janúar
01.01.2016 21:17
Annáll 2015
Sælir kæru lesendur!
Um leið og við óskum ykkur gleðilegs nýs ár
með kærri þökk fyrir það liðna, ætlum við að líta um öxl og fara yfir liðið ár.
Árið 2015 var okkur Litla-Garðs fjölskyldunni gott. Við
vorum heppin með starfsfólk, en hjá okkur voru í byrjun árs þær Jóhanna Schultz
og síðar kom Lena Höller.
Lena fór til sinna
heimahaga, Austurríkis í vor og var þá búin að heillast af einni
Gangstersdóttirinni sem var í eigu Siggu og Kalla í Hólum að hún tók hana með
sér út.
Lena og Gangstersdóttirin Orka frá Hólum. Hún hlaut 7,79 í byggingu, upp undir fyrstu verðlaun fyrir hæfileika eða 7,98 a.e 7,91
Jóhanna "sem er menntaður reiðkennari frá Hólum" hélt áfram hjá okkur í sumar og við bættist Jakob kærastinn hennar sem var núbúin að ljúka sínu fyrsta ári á Hólum. Hann er einnig járningarmeistari og létti það einnig mikið undir. Jóhanna var búin að tryggja sér eina Gangstersdóttir Eldbrá frá Litla-Garði og Jakob nældi sér í Tind frá Árgerði, en þessi hross fluttu þau með sér til Hollands með haustinu.
Eldbrá frá Litla-Garði og Jóhanna
Lucienne
Niederquell kom einnig í sumar og var hjá okkur smá tíma, og tók hún einnig með
sér heim hana Emilíönu frá Litla-Garði og ósk um við eigendum innilega til
hamingju og velfarnaðar með gæðingana á nýjum slóðum.
Skilaði þetta úrvals starfsfólk okkur góðu verki og er
ekki amarlegt að halda áfram með þeirra góða innlegg í hrossunum.
Biggi sýndi 7 hryssur í fullnaðardóm þetta árið og fóru 5
þeirra í fyrstu verðlaun.
Það
var Gangstersdóttirin Eldbrá frá Litla-Garði (sjá mynd að ofan) í eigu Jóhönnu Schultz fór beint í fyrstu verðlaun í fyrsta kasti.
Hæfileikar 8,28 sköpulag 7,78 A,e 8,08
Augnakonfektið Aldís frá Krossum hlaut í sköpulag 7,90, í hæfileika 8,08 Ae 8,01
Dögun frá Akureyri í
eigu Erlings Guðmundssonar Akureyri smellti sér einnig yfir í fyrstu verðlaun.
Hún hlaut í sköpulag 7,88 , í hæfileika, 8,41, Ae. 8,20
Dögun frá Akureyri
Síðan var það Kvika frá Árgerði í eigu Dísu í
Árgerði. Kvika hlaut 8,06 fyrir byggingu 8,08 fyrir hæfileika ae 8,07. Kvika er
undan Blæ frá Hesti og Nös frá Árgerði.
Kvika frá Árgerði
Síðust en ekki síst er
það Kiljansdóttirin okkar hún Eldborg frá Litla-Garði.
Hún er undan Kiljan frá Árgerði og Væntingu frá Ási 1. Þessi fimm vetra skutla fékk í byggingu 8,06, hæfileika 8,44 A.e. 8,29 þar af 9 fyrir samræmi, vilja og geðslag, fegurð í reið, og 9,5 fyrir hægt tölt :) Til gamans má geta að Eldborg er áttunda hæðst dæmda fimm vetra hryssan árið 2015.
Fjórðungsmót Austurlands var haldið um mánaðarmótin júní/júli á Stekkhólma. Fórum við með allmörg hross þangað og gekk það nokkuð vel en vallaraðstæður voru yngri kynbótahrossunum okkar ekki hagstæðar þar sem að völlurinn var of þungur, og náðu þau því ekki öll að skila fullum afköstum. Eldri hrossin komu betur út og hækkaði til að mynda Dögun frá Akureyri sig vel og fór í 8,41 fyrir hæfileika.
Sindri Snær og Tónn skiluðu sínu vel, voru efstir eftir forkeppni í barnaflokki eftir frábæra sýningu, en höfnuðu í öðru sæti í úrslitum eftir hörku keppni. Áttum við góða daga á Héraði og þökkum Freyfaxamönnum fyrir glæsilegt mót.
Allmörg hross skiptu um eigendur á árinu og ætlum við ekki að tíunda það hér frekar en að stóðhesturinn Kiljan frá Árgerði var seldur í sumar.
Kiljan fer til
Austurríkis næstkomandi haust og ætlum við Litla-Garðsbændur að vera dugleg að
nota hann næsta sumar því hann hefur verið að skila okkur virkilega spennandi
tryppum. Þekktust afkvæma hans er líklegast hin rísandi stjarna Eldborg frá
Litla-Garði sem að er nú þegar orðin mörgum kunn einungis 5 vetra gömul.
Síðast liðið sumar fæddust 10 folöld. Þau eru undan Loka frá Selfossi, Gangster frá Árgerði, Kiljan frá Árgerði, Sæ frá Bakkakoti og Hróð frá Refstað.
Hér er ein mesta vonarstjarna húsbóndans Glitnir frá Litla-Garði undan Gangster og Mirru frá Litla-Garði.
Við ákáðum að uppfæra okkur aðeins þetta árið og fórum með systurnar Mirru og Eldborg í fósturvísaflutninga í Dýrfinnastaði. Tókst það með ágætum og eignast þær folöld næsta vor með aðstoð staðgöngumæðra.
Mirra frá Litla-Garði
Þær verða hins
vegar sjálfar í sviðsljósinu og eiga að öllum vonum eftir að kynna okkar
ræktun vel næsta árið. Móðir þeirra hún Væting fór hins vegar aftur undir
Kiljan og nú er að sjá hvort við getum búið til aðra eins Eldborg.
Nýjasta djásnið okkar hún Gullborg undan Væntingu og Gangster.
Í haust komu Jenny Carlsson og Eydís
Anna og aðstoðuðu Bigga við frumtamningarnar.
Biggi er nú ekki
morgunlatur maður að eðlisfari, en þetta haustið var hann einstaklega glaður og
spenntur að vakna og byrja daginn.
Ástæðan var býsna stór árgangur af Gangsters afkvæmum og sem ræktandi er
auðvitað mest gaman að sjá hvernig ræktunin skilar sér áfram.
Tenór 3. v. Gangsterssonur M. Sónata frá Litla-Hóli
Umsögn Bigga um tryppin!
Þetta er fyrsti árgangurinn undan
Gangster sem taminn er undan sýndum mæðrum. Það hefur verið einstaklega gaman
að frumtemja þennan hóp en þau þau eiga það sammerkt að vera sérstaklega
geðgóð, næm og skynsöm.
Öll fóru þau um á brokki til að byrja
með en opnuðu mjög fljótt inn á töltið sem er takthreint með alvöru skrefi og
sýna frábæra reiðhestshæfileika.
Gangster er búin að hafa það náðugt í ár enda kannski búin að kynna sig
nóg í bili. Hann kom einungis fram á reiðhallarsýningu vesturlands Borgarfirði,
en þar í nágrenninu á Arnbjörgum á Mýrum eyddi hann sumrinu ásamt fullt af
glæsihryssum. Fyljunarprósentan var frábær, eða 99 %.
Næsta sumar eigum við von á 10 folöldum en þau eru undan
Stegg frá Hrísdal, Gangster frá Árgerði, Kiljan frá Árgerði, Tristan frá
Árgerði, Korg frá Ingólfshvoli og Arð frá Brautarholti. Fórum einnig með eina
hryssu undir frá Kjark frá Skriðu en það tókst ekki í þetta skiptið.
Gengin er til feðra sinna einn mikilvirkasti hrossaræktandi
landsins Magni Kjartansson 85 ára að aldri. Hann hefur um langt skeið verið í
fremstu röð hrossaræktanda heimsins en frá honum hafa komið ófá afrekshrossin
ritar Óðinn Örn Jóhannsson í nýjasta Eiðfaxablaðinu.
já þann 30 nóvember kvaddi Magni okkar í Árgerði þessa
jarðvist. Kveðjum við hann með þakklæti og með söknuð í hjarta. Magni var okkur
ætíð traustur og hjálpsamur, skepnumaður með meiru og hugsaði vel um dýrin sín.
Hann var fylginn sinni sérvisku varðandi hrossaræktina og skilaði það honum vel
í gegnum tíðina. Hann lagði mikið upp úr afbrags geðslagi og mikilli getu á
gangi.
Gengin er mikill
maður og hrossaræktandi og erum við þakklát að fá að taka við hans mikla og
góða starfi. Kveðjum við góðann stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa með
kærri þökk fyrir samfylgdina og alla viskuna sem hann færði okkur.
Hvíld í friði elsku Magni okkar.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Megi nýja árið vera ykkur kæru lesendur
gæfuríkt og gott.
Við í Litla-Garði förum full vonar og
bjartsýni inn í nýja árið með trú um að það verði gæfusamt.
- 1