15.08.2009 12:46

Opið stórmót á Melgerðismelum 21.-23 ágúst



Opið stórmót hestamanna verður haldið á Melgerðismelum 21.-23. ágúst. Keppt verður  í A- og B-flokki, barna- unglinga- og ungmennaflokki og verður forkeppnin með þrjá inni á vellinum í einu.  Einnig verður töltkeppni og kappreiðar með keppni í 100 m flugskeiði, 150 og 250 m skeiði, 300 m brokki og 300 m stökki.

Vegleg peningaverðlaun verða í boði í kappreiðum og tölti, en 1. verðlaun verða 40 þús. 2. verðlaun 20 þús. og 3. verðlaun 10 þús. kr. í þeim greinum nema brokki og stökki, en þar verða 1. verðlaun 10 þús. og 2. og 3. verðlaun 5 þús. kr. Skráning sendist í seinasta lagi þriðjudaginn 18. ágúst til Stefáns Birgis í netfang [email protected], eða síma 896 1249.

Skráningargjald kr. 2.500- fyrsta skráning og aðrar skráningar kr. 1.000- greiðist inn á bankar. 0162-26-3682, kt. 470792-2219.
Mótið verður jafnframt gæðingakeppni Hestamannafélagsins Léttis.



Flettingar í dag: 357
Gestir í dag: 63
Flettingar í gær: 1044
Gestir í gær: 252
Samtals flettingar: 820414
Samtals gestir: 54708
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 07:31:48