03.06.2010 19:06
Ræktunarstarfið gengur vel.
Já það má nú segja að ræktunarstarfið gangi vel hér á bæjum á hvað sem litið er. Hross frá Árgerði sem í dóm hafa farið hafa komið vel útúr því og eru 3 hross nú þegar komin yfir 8.30. Hryssurnar kasta hægri vinstri á báðum bæjum og ætla ég að reyna koma smá yfirliti hér á framfæri það sem komið er.
Bleikálótt hryssa
M: Kveikja frá Árgerði (8.03)
F: Gári frá Auðholtshjáleigu (8.63)
Eig. Birgir
Rauðstjörnótt hryssa
M: Sunna frá Árgerði
F: Jón frá Sámsstöðum
Eig Hafþór Magni
Brúnn hestur
M: Snerpa frá Árgerði
F: Jón frá Sámsstöðum
Eig. Birgir
Jörp hryssa
M: Gyðja frá Teigi
F: Kiljan frá Árgerði
Eig. Birgir
Rauð/stjörnóttur hestur
M: Tvístjarna frá Árgerði
F: Kiljan frá Árgerði
Eig. Birgir
Brún hryssa
M: Snælda frá Árgerði
F: Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Eig. Birgir
Jörp hryssa
M: Sandra frá Árgerði
F: Kiljan frá Árgerði
Eig. Magni
Rauð hryssa
F: Blær frá Hrafnagili
M: Gná frá Árgerði
Eig. Magni
Jörp hryssa
M: Vaka frá Árgerði
F: Gangster frá Árgerði
Eig. Magni
__________________________________________________
Sauðburðurinn er allur búinn hér og kom bara ágætlega út. Kötturinn tók einnig upp á því að fjölga sér svo gaut hún 5 kettlingum í síðustu viku, Sindra til mikillar ánægju.
Endilega hafið samband ef ykkur skyldi vanta litla kettlinga :)
Þann 22. maí síðastliðinn áttu Nanna og Magni afmæli. Magni var nú 80 ára og gáfum við honum stutta samantekt af ræktun hans í myndum sem hann var himinsæll yfir.
Magni og Dísa
Ásdís, Herdís og Bogga afhenda Magna gjöfina.
Nú eru krakkarnir búnir með skólann. Skólaslitin voru í vikunni og komu krakkarnir vel út.
Systkinin fyrir skólaslitin.