11.06.2013 16:11
Sindri og Tónn með sitt fyrsta gull
Um síðustu helgi gerðist sá stóri viðburður í lífi hins 10 ára Sindra Snæs að vinna sitt fyrsta gull á ferlinum. Sindri er mjög áhugasamur strákur sem er enn að feta sín fyrstu spor á keppnisbrautinni.





Sindri keppti á Tristanssyninum Tóni frá Litla-Garði sem hann fékk lánaðan hjá mömmu en Tónn er frúarhesturinn á bænum. Algjör dýrgripur sem allir geta riðið á og haft gaman af.
Mót þetta var gæðingakeppni Funa og var riðin hefðbundin forkeppni með feti og stökki.


Flottir einbeittir félagar í úrslitunum

Flottur !
Skrifað af asdishelga
Flettingar í dag: 2113
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 3607
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 3522982
Samtals gestir: 108493
Tölur uppfærðar: 21.9.2026 01:51:49
