Góðan daginn kæru lesendur.
Gangster stóð sig stórkostlega á Landsmóti hestamanna, var 5
hæsti hestur eftir forkeppni A flokks með einkunnina 8,76.
Milliriðill gekk frábærlega þar sem að þeir félagar áttu
glæsisýningu og uppskáru annað sætið með
einkunnina 8,91 á eftir Spuna frá Vesturkoti.
Endaði hann í 6 sæti í A úrslitum í stekasta A flokk fyrr og
síðar þrátt fyrir að það hafi vantað upp
á að hann hafi skilað 9,5 brokkinu sínu að fullu.
Það sem er ekki minna um vert er að Gangster vakti mikla
athygli og var hestur brekkunnar að margra mati, ásamt því að ekki ómerkari
maður en Jens Einarsson nefndi í FB blogginu sínu að Gangster hefði verið sá
hestur sem að hann hefði viljað taka með sér heim á mótinu J
Við vorum svo heppin að Jóhanna tamningakonan okkur er
heimavön á suðurlandinu og útvegaði okkur frábæra aðstöðu fyrir hestinn í
Hjarðartúni hjá Óskari og Ásu. Jón Páll
var okkur þar innan handar og sá um hirðingu og sparaði okkur sporin.
Frábær
aðstaða, fallegur staður með yndislegu fólki, kærar þakkir fyrir okkur allir í Hjarðartúni, vonandi
getum við launað ykkur greiðann síðar J
Mynd tekin rétt áður en að riðið er í braut fyrir A flokks úrslitin.
Hérna kemur myndasyrpa í boði Ásdísar Helgu.
Hér eru að finna myndir út forkeppni, milliriðli og A flokks úrslitunum sjálfum.
Nokkrar myndir úr brekkunni ásamt hinum frábæra Gangstersyni Farsæl frá Litla-Garði sem spreytti sig í kynbótabrautinni við mikla hrifningu áhorfenda.
Það reyndist ansi erfitt að velja á milli myndanna, þannig að þið fáið að sjá ansi margar af ljósmyndastjörnunum okkar.
Góða skemmtun :)
Flugskeið :)
Milliriðill.
Á leiðinni í skeiðið.
Stuð á karli.
Þvílík veisla:)
Gangster og Gróði frá Naustum.
Veðrið var ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Skrefar drjúgt.
Blörruð af rigningu og hrifningu :)
Skutlurnar :)
mæðgin :)
uppáhalds :)
Gangsterssonurinn Farsæll frá Litla-Garði undan henni Sónötu okkar stóð sig einnig frábærlega í kynbótabrautinni á Landsmóti og skartar meðal annars 9,5 fyrir fet, vilja og geðslag, 9 fyrir tölt og brokk. Glæsilegur klárhestur úr okkar ræktun sem vakti verðskuldaða athygli.
Mikið fas.
Flugrúmur gæðingur.
Efst í huga er þakklæti til allra þeirra sem hafa stutt við okkur og samglaðst.
Þakklát erum við Magna og Dísu í Árgerði sem eiga heiðurinn af bakgrunninum sem við erum svo heppinn að fá að halda áfram að rækta út af. Þetta er mikil auglýsing fyrir hrossaræktarbúin Árgerði / Litli-Garð,
Bigga og Gangsterinn okkar, sem er nú fyrir vikið orðin enn þekktari í
hestaheiminum.
Ásdís Helga hefur verið dyggur stuðningbolti í tamningum, markaðsmálum og fréttaflutningi í gegnum tíðina að ógleymdum Gesti dýralæknir sem er traustur og góður vinur og hefur alfarið séð um járningar á Gangster.
Gangster er í Sandhólaferju og tekur á móti hryssum þar, upplýsingar gefur Guðmar í síma 661-9112
Bestu kveðjur frá Litla-Garði