Færslur: 2014 Mars
22.03.2014 21:31
Snjóríki
Já kæru lesendur, þetta blessaða veður hefur svo sannarlega ekki farið framhjá neinum. Þetta hefur nú loksins gengið yfir en annar eins snjór hefur aldrei sést í Litla-Garði síðan í "gamla daga".. þökk sé norðvestan áttinni og fallega skjólbeltinu okkar.
Það var ævintýri líkast að ríða út í dag og komumst við ekki hjá því að smella nokkrum myndum af færðinni.
Látum myndirnar tala sínu máli. Enjoy.
Það var ævintýri líkast að ríða út í dag og komumst við ekki hjá því að smella nokkrum myndum af færðinni.
Látum myndirnar tala sínu máli. Enjoy.
Hér má sjá skaflinn á veginum í dag, æskilegra var að keyra utanvegur.
Hér er Stína á Jarli frá Árgerði en þau eru á veginum, á meðan Birgir stendur með Gangster uppi á skaflinum
Stína og Jarl frá Árgerði við skaflinn
Endum þetta á einni mynd af þeim vinum, Sindra og Skunda :)
Skrifað af Nanna Lind
21.03.2014 18:39
Snyrtistofan
Yfirleitt getum við státað okkur af veðursæld hér í Litla-Garði, hér er með eindæmum snjólétt en síðustu tvo daga hefur ekki sést út úr augunum. En þá er bara að dunda með hrossin inni í skemmu, járna og skipta faxi. Var sett upp snyrtistofa í dag og var Biggi ekkert smá kátur að hafa 3 kellur í verkið :)
Fórum líka aðeins að kíkja til veðurs, Allir kátir að fá smá snjó :)
Skrifað af herdis
20.03.2014 20:23
Síðbúnar fréttir af ísmóti
Sælir kæru lesendur.
Það hefur verið frekar lítið um fréttir hjá okkur þar sem að ný heimasíða er í vinnslu og hefur það því miður komið niður á þessari en þetta stendur nú allt til bóta. Hér í Litla-Garði gengur lífið sitt vanagang, mikið riðið út og ótrúlega margt af spennandi hrossum á öllum stigum tamningar.
Biggi ákvað að bregða sér af bæ seinustu helgi og taka þátt í ísmóti á Leirutjörn, enda kærkomið að geta farið á útimót þar sem að reiðhallasýningar tröllríða öllu svona yfir háveturinn :) Hann fór með tvær hryssur á mótið. Fyrst skal nefna Skerplu frá Brekku sem er verulega flott hryssa í eigu Magnúsar Jósefssonar í Steinnesi. Hún er viljug, hágeng alhliðahryssa með mikið fas sem getur gengið hvort heldur sem er í íþrótta eða gæðingakeppni. Fór Biggi með hana í töltið og höfnuðu þau í 2. sæti með einkunnina 6,75 úr forkeppni. Flottur árangur þar sem hún er nú að stíga sín fyrstu skref á keppnisbrautinni.

Hin hryssan var Sigurdís frá Árgerði en hana fór Biggi með í 100 m flugskeið og báru þau sigur úr bítum með tímann 8,86. Þess má geta að Sigurdís var á ísmóti á Dalvík í febrúar og þá var tíminn 8,65. Verulega lofandi skeiðhryssa á ferð og spurning hvort komin sé staðgengill fyrir Blakk frá Árgerði, sem mörgum er kunnugur fyrir vasklega framgöngu í skeiði síðustu 15 ár.
Þangað til næst, lifið heil :)
Skerpla frá Brekku
Skrifað af herdis
- 1
Flettingar í dag: 7241
Gestir í dag: 117
Flettingar í gær: 5796
Gestir í gær: 333
Samtals flettingar: 1270613
Samtals gestir: 81188
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 23:45:00