29.03.2015 17:47
Kea mótaröðin og Faxaborg
Sæl á ný.
Undarfarnar vikur hafa gengið prýðilega fyrir sig, tamningar á fullu og alltaf nóg að gera.
Þessi helgi var til að mynda ansi þéttbókuð og
þurfti aðeins að púsla sem svo oft áður til að dagskráin gengi upp.
Kea mótaröðin var nú á föstudagskvöldið og í þetta sinn var keppt í tölti.
Fórum með tvö hross frá okkur, Biggi með Aldísi frá Krossum og Jóhanna með Emiliönu frá Litla-Garði. Eitthvað var Emiliana feimin við höllina og sýndist ekki sem skildi en Biggi komst með Aldísi í úrslit og höfnuðu þau í 4ða sæti í opnum flokki með einkunina 6,83.
Aldís frá Krossum.
Gangster þurfti aftur á móti að vera komin í
Borgarnes á föstudaginn og vorum við svo heppin að Hafþór sonur okkar og
fjölskylda tók hann með sér suður á föstudagsmorgun, svo hann gæti hvílt sig á
ferðalaginu og tekið á því á laugardagskvöldið.
Biggi brunaði síðan suður á laugardagsmorgun til
að taka þátt í sýningunni í Faxaborg.
varð að leyfa einni "Arti" að fljóta með :)
Kynningin var sem sagt!
Vesturlandssýning í Faxaborg í Borgarnesi á laugardagskvöldið en á því svæði
"nánar tiltekið Arnbjörg á Mýrum"
verður Gangster einmitt tvö gangmál í sumar . Nú þegar er orðið fullt hjá
honum fyrra gangmálið og tekið er niður á biðlista. Um að gera að skrá sig
sem fyrst.
Biðst velvirðingar á blörruðum myndum en þið þekkið vonandi kallana.
Gangster í Faxaborg Borgarnesi í gærkvöldi.
Hæga töltið
Og að sjálfsögðu klikkaði ekki skeiðið.
Gekk sýningin með ágætum þótt heldur sé nú
Gangster hrifnari af grænum grundum heldur en reiðhöllum, enda kannski ekki
skrítið þar sem að hann þekkir það umhverfi mun betur :)
Biggi og Gangster hvíldu sig eftir sýningu en tóku daginn snemma eins og þeir eru vanir að gera og voru komnir aftur heim í Litla-Garð rétt upp úr hádegi.
Vonum að þið hafið átt góða helgi kæru lesendur.
Bestu kveðjur úr Djúpadal.
,
13.03.2015 22:05
Afkvæmi Gangsters.
Sæl
á ný.
Gangsterssonurinn Brúnó frá Hólum.
Okkur langar að deila með ykkur nokkrum myndum af Gangsters afkvæmum.
Við notuðum Gangster lítillega sem ungfola en mest var hann hjá Kalla og Siggu fyrrum Hólabænda í Eyjafjarðarsveit. Var hann hjá þeim í hólfi tveggja og þriggja vetra.
Þau
hross sem okkur fæddust á þessum tíma eru öll seld en eitthvað er til af yngri
hrossum sem ekki eru komin á tamningaraldur.
Við
erum nú samt svo lánssöm að nokkur þessara hrossa hafa ratað hingað inn á
tamningarstöðina og fáum við nú að njóta þess að kynnast þeim og þjálfa.
Gangster
á nú þegar eitt dæmt afkvæmi, fyrstu verðlauna stóðhestinn Farsæl frá
Litla-Garði.
Gangsterssonurinn Farsæll frá Litla-Garði ásamt eiganda sínum Magnúsi Inga Mássyni.
Önnur afkvæmi Gangsters sem eru hér í tamningu og þjálfun eru!
Brúnó frá Hólum er stór og myndarlegur hestur. Viljugur, skrefmikill og á örugglega eftir að gera það gott á keppnisvellinum.
Skrefmikill og flottur hestur.
Orka frá Hólum er einstakslega geðgóð og skemmtileg hryssa. Stefnt er með hana í dóm í vor. Hennar vettvangur verður líklegast fimmgangur.
Orka tekur sinn fyrsta skeiðsprett.
Orka og Brúnó eru í eigu Kalla og Siggu fyrrum Hólabænda.
Fallegt skref og eðlis fótaburður.
Mökkur frá Hólum er næsti hestur sem við kynnum til leiks. Hann er búin að vera í gangsetningu í vetur og er mjög lofandi.
Mökkur frá Hólum Eigandi Vera Roth.
Mökkur er stór og myndarlegur með mikið rými og fótaburð.
Síðust en ekki síst er Eldbrá frá Litla-Garði. Er hún í eigu Johönnu Schultz og er hún jafnframt knapi hennar.
Eldbrá er verulega töff hryssa sem stefnt er með í dóm í vor.
Eldbrá er mjög spennandi efniviður í frábæran töltara.
Þess má geta að öll þessi hross eru á sjötta vetur og eiga það sameiginlegt að vera undan ósýndum mæðrum, fyrir utan Farsæl en móðir hans hlaut 7,59.
Erum við afar ánægð með þessi tryppi og er það tilhlökkunar efni hvern dag að halda áfram þjálfun þeirra. Þau eru auðveld og fljót til með skemmtileg gangskil.
Látum myndirnar tala sínu máli.
Bestu kveðjur úr dalnum.
07.03.2015 22:38
Síðbúnar þorrafréttir
11.02.2015 22:25
Á fullum snúning.
Sælir kæru lesendur.
Lifið hér í Litla-Garði gengur sinn vanagang, nóg að gera í tamningum hjá Bigga og Jóhönnu
og verður kærkomið að fá þriðja starfskraftinn hana Lenu Höller næstu
mánaðarmót.
Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá hefur
fréttaflutningur verið í lámarki og er ástæðan sú að frúin á heimilinu er farin
að vinna fulla vinnu á Meðferðaheimilinu Laugalandi, auk þess sem að hún er afar
söngelsk og syngur m.a með kammenkórnum Hymnodiu ásamt fleiri tilfallandi heimilis og bókhaldsverkum o.þ.a.l vinnst minni tími til skrifta.
Hymnodia á jólatónleikum.
En við munum lofa ykkur að fylgjast með eftir bestu getu. Veður er búið að vera ansi óstöðugt það sem af
er ári og myndavélin verið meira í skúffunni en í notkun:)
Sindri Snær
stundar skólann og spilar fótbolta með KA
og fór í sitt fyrsta keppnisferðalag "án foreldra" til
Reykjavíkur fyrir stuttu og gekk það vel. Æfingar fara fram á Akureyri og er
það stundum dálítið púsl að láta alla hluti ganga upp.
Hann fagnaði 12 ára afmæli nú í janúarlok í góðra vina hóp :)
Flottir strákar í gistipartý :)
Mörg spennandi tryppi eru hér í tamningu og má þar nefna hross undan Óm frá Kvistum,
Gangster frá Árgerði, Tind frá Varmalæk, Fróða frá Staðartungu, Kiljan frá Árgerði, Álf frá Selfossi, Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, og margir fleiri koma við sögu.
Hér á eftir koma tvær ungar efnilegar hryssur ættaðar frá Árgerði.
Þetta er Sena frá Árgerði undan Snældu frá Árgerði og Tind frá Varmalæk.
Sena er á sjötta vetur. Knapi er Johanna Schultz.
Hin hryssan er í eigu Magna og Dísu og heitir Sól frá Árgerði.
Sól er undan Blæ frá Hrafnagili og Sylgju Snældu-Blesadóttir frá Árgerði.
Hún er á fimmta vetur og setin af Litla-Garðs bóndanum sjálfum.
Látum þessar ungu og efnilegu dömur eiga síðasta orðið.
Þangað til næst, lifið heil.
Kærar kveðjur
frá Litla-Garði og Árgerði
nnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnn
31.12.2014 10:10
Annáll 2014
Sæl á ný.
Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
Árið 2014 byrjaði ekkert sérlega vel en 11 janúar fell frá góður vinur okkar og samstarfsmaður Herdísar í tónlistinni til fjölda margra ára, Gunnar Tryggvason. Gunni var öflugur tónlistarmaður, samdi lög, útsetti og lék á hin ýmsu hljóðfæri. Minnumst við hans með söknuði og hlýhug .
Gunnar Tryggvason lagahöfundur og músikant. Mynd tekin 6 jan 2012.
Að öðru leiti var árið 2014 okkur Litla-Garðs bændum nokkuð gott.
Síðast liðin vetur starfaði hún Kristín Birna hjá okkur og lauk hún störfum hér í vor. Í maí kom til okkar Johanna Schulz en hún hafði nýlokið námi og hlotið BS-gráðu frá Háskólanum á Hólum sem reiðkennari og þjálfari. Starfaði hún hjá okkur út þetta ár og verður áfram langt fram á næsta ár. Aðrar stúlkur komu einnig hér til aðstoðar og má þar fyrst nefna hana Júlíu okkar sem hefur verið hjá okkur áður og kann vel til verka hér á bæ. Maike og Marlene Nagel voru síðan hjá okkur í haust og fram í desember og þökkum við þeim fyrir vel unnin störf. Það er ómetanlegt að hafa góðar tamningarkonur.
Jóhanna og Glymra frá Litla-Garði
Tamningar gengu vel, alltaf nóg að gera bæði í tamningarhrossum sem og okkar eigin sem er orðin allgóður floti.
Hátindur ársins var
klárlega velgengni Bigga með Gangster frá Árgerði á LM þar sem að hann hafnaði
í sjötta sæti í sterkasta A flokk sögunnar. Það er mikil viðurkenning fyrir
Bigga sem hefur tamið og þjálfað hestinn alla tíð sem og okkar ræktunarbú.
Gangster hefur toppað sig með hverju árinu og meira er ekki hægt að biðja
um.
Gangster stimplaði sig
líka inn sem kynbótafaðir á árinu. Þrátt fyrir ungan aldur á hann nú þegar eitt
fyrstu verðlauna afkvæmi og er það hestur úr okkar ræktun, stóðhesturinn
Farsæll frá Litla-Garði sem er í eigu Magnúsar Inga Mássonar. Hlaut hann 8,00
fyrir sköpulag 8,32 fyrir hæfileika AE 8,19 sýndur sem klárhestur 5 vetra
gamall.
Farsæll frá Litla-Garði 4ra vetra.
Fleiri efnileg afkvæmi
Gangsters hafa verið hér í tamningu og erum við sérlega spennt fyrir þeim sem byrjað er á. Brúnó og Mökkur
frá Hólum eru stórir og myndarlegir, hreyfingarmiklir og verulega spennandi
hestefni. Orka og Melodía frá Hólum eru einnig í uppáhaldi en Gangster var
einmitt á Hólum í Eyjafjarðarsveit hjá Kalla og Siggu þegar hann var tveggja og
þriggja vetra.
Eldbrá frá Litla-Garði
sem er nú í eigu Johönnu Schulz tamningarkonunnar okkar er svakalega efnileg
hryssa.
Eldbrá frá Litla-Garði knapi og eigandi Johanna Schulz
Það má til gamans geta
að öll tryppi sem við höfum sjálf ræktað og sem hafa náð tamningaraldri undan
Gangster eru seld. En það er eitthvað til í yngri árgöngum.
Hryssan Mirra frá Litla-Garði var falleg rós í hnappagatið.
Mirra hlaut 8,36 í
byggingu, 8,34 í hæfileika og 8,35 til aðaleinkunnar. Þar af 9 fyrir hægt
tölt, fegurð í reið, fyrir vilja og geðslag og háls og herðar.
Auk þess hefur hún vakið
mikla athygli fyrir sitt fas og exfactorinn hefur hún . Hún tók þátt í nokkrum
mótum og skoraði þar hátt bæði í B flokk og töltkeppni.
Hún fékk farmiða inn á
LM en helltist og varð af þeirri upplifun. Á þeirri örlagastundu var Mirra í
hestalátum og var henni haldið undir Gangster sama dag og keyrt var með hann
suður á LM og dugði þetta eina skipti til þess að Mirra varð fylfull. Meiningin
er að láta hana eiga þetta draumafolald og halda síðan áfram að þjálfa hana og stefna með hana í enn hærri tölur.
Nokkur folöld fæddust á
árinu eða sex talsins og voru þau undan Gangster, Óskasteini frá Íbishóli og Ramma
frá Búlandi.
Stóðhestarnir sem við
notuðum í sumar voru Sær frá Bakkakoti, Loki frá Selfossi, Hróður frá Refstað,
Kiljan frá Árgerði og Gangster. Við bíðum sannarlega spennt eftir vorinu.
Helstu vonarstjörnur í
vetur að meðtöldum áðurnefndum Gangstersafkvæmum!
Eldborg Kiljansdóttir (Árgerði)
Ópera Ómsdóttir
Fjöður Gígjarsdóttir
Viktoría Kapalsdóttir
Sól Blæsdóttir
(Hrafnagili)
Óðinn Ómssonur (stóðhestur)
Flygill Fróðasonur ( stóðhestur)
Sena Tindsdóttir
Kvika Blæsdóttir (Hesti)
Aldís Álfsdóttir
Bergrós Hófsdóttir
og enn eru nokkur
ónefnd.
Nokkur af okkar hrossum
skiptu um eigendur á árinu og óskum við nýjum eigendum velfarnaðar og lukku.
Sindri Snær var virkilega duglegur í útreiðum í sumar og tók þ.a.l. miklum framförum. Hann tók þátt í mörgum mótum á Tóni Tristansyninum og kom aldrei heim án medalíu.
Þar bar hæðst sigur hans á Stórmóti Funa en þar sigruðu þeir félagar með einkunnina 8,65 sem var jafnframt hæsta einkunn mótsins.
Hann tók einnig þátt í trekk námskeiði á Báru frá
Árbæjarhjáleigu sem haldið var á
Melgerðismelum síðast liðinn vetur og sumar og hafði gaman að, en þar er
keppt og þjálfað í ýmiskonar þrautabrautum.
Við Litla-Garðs hjón
urðum einu barnabarni ríkari á árinu en elsti sonurinn hann Hafþór Magni
eignaðist sitt annað barn nú í haust. Hann hlaut nafnið Magni Rafn og er þá
virkilega buið að festa nafnið í sessi. Fyrir áttu þau Heiður yndislega
fjögurra ára snót, hana Viktoríu Röfn.
Magni Rafn og Viktoría Röfn.
Hafþór og konan hans Heiður eru búsett í Hafnarfirði en Hafþór byrjaði einmitt í nýrri vinnu á árinu og er orðin matráður á togara og gengur það mjög vel enda er hann svakalegur kokkur.
Hafþór Magni, Heiður, Viktoría Röfn og Magni Rafn á skírnardaginn.
Nanna Lind dóttir okkar útskrifaðist af raungreinasviði MA í vor og lauk þar með 4ra ára námi þar.
Ákvað hún að taka sér ársfrí frá skóla, fékk sér vinnu á Hótel Laxá í Mývatnssveit í sumar ásamt Darra kærasta sínum og stefna þau á heimsreisu nú á nýju ári.
Næsta haust stefnir hún á háskólanám. Darri Rafn ætlar suður að klára guðfræðinginn.
Magni og Dísa halda áfram ræktun en í mun minna mæli en áður var. Eru þau gömlu nokkuð hress og fylgjast vel með öllu.
Ásdís Helga frænka Herdísar er sú sem hefur fylgt fjölskyldunni í hestaheiminum sem og annar staðar í áraraðir og ekki hægt að hafa annál án þess að minnast á hana. Síðast liðið ár hefur hún búið á Akureyri og ásamt litla gaurnum sínum honum Elmari Frey.
Hún hefur starfað sem tamningarkona hjá Baldvin Ara Guðlaugssyni og mun halda áfram þar á nýju ári.
Tekið var viðtal við okkur Bigga nú á haustdögum frá hestablaðinu Eiðfaxa og vorum við svo heppin að fá að prýða forsíðu blaðsins.
Síðasta rósin í
hnappagatið á þessu ári var að Litli-Garður hlaut titilinn ræktunarbú ársins á
sambandssvæði HEÞ.
Það var virkilega gaman
að því og segir til um að ræktunin sé á réttri leið.
Um leið og við óskum
ykkur gleðilegs nýs árs langar okkur
að þakka viðskiptavinum okkar
fyrir góð og ærleg viðskipti á árinu. án ykkar væri þetta ekki hægt.
Kærleiksríkar kveðjur
frá Litla-Garði.
23.12.2014 17:11
Gleðileg jól
Hýrna frosnar grundir
Guð þér sendi gleðileg jól
og góðar vetrar stundir.
02.12.2014 21:06
Desember
18.11.2014 10:17
Gæðingamóðir fallin.
Faðir: Kraftur frá Bringu
Faðir: Tristan frá Árgerði
07.11.2014 16:09
Viðurkenning á ræktun.
20.10.2014 13:17
Hrossin heim
28.09.2014 22:15
Gangsterinn komin heim.
18.09.2014 09:55
Ræktun hesta og kinda skoðuð :)
Sænsku konurnar eru hér að skoða ættartréð stóra en að mestu má rekja alla okkar ræktun til
Snældu frá Árgerði. Ættbogi hennar er
orðin afar stór og myndarlegur. Saga Snældu-Blesa vakti athygli en það má með
sanni segja að brasið með hann er hann fótbrotnaði og var hjúkrað til heilsu
svo hann gæti sinnt merum hafi aldeilis skilað sér þar sem að hann er á bak við
okkar allra sterkustu ræktunarhross í dag eins og Elvu frá Árgerði Glæðu frá Árgerði og afkvæmi hennar þau
Glettingu, Gloríu,Gangster, Glym, og nýjustu stjörnuna okkar hana Mirru
Glymsdóttir frá Litla-Garði og áfam mætti lengi telja.
Einnig vakti athygli mynd af Heklu Pennadóttir frá Árgerði .
Hún var hreinræktaður Árgerðingur og eru ekki allir sem vita að hún er einmitt móðir hinnar miklu
gæðingamóðir Óskar frá Brún. Afkvæmi Óskar
eru ekki af verri endanum og má þar nefna fyrstu verðlaunahestana Óð, Ofsa, Óm,
Hljóm, Óskahrafn og Höld frá Brún.
Virkilega gaman að fara svona oní saumana og sjá hvað framræktunin er gríðarleg frá gamla höfðingjanum honum Magna í Árgerði en stóðhesturinn Penni frá Árgerði er einmitt langafi þessara hesta. Það er draumur hvers ræktanda þegar að ættboginn vex og dafnar með slíkum árangri :)
En að allt öðru, fyrstu göngur eru búnar og voru skil á fé góð, Þó eru nokkrar skjátur enn eftir að skila sé heim. Vel var mætt í réttir hjá okkur og vorum við svo heppin að hafa litlu ömmu og afastelpuna í heimsókn;)
Viktoría Röfn, litla prinsessan og langamma "Dísa" í rettunum:)
Sindri Snær með vini sínum og nágranna Óla í Hvassafelli. Og að sjálfsögðu átti hann þennan myndar hrút.
Dísa Viktoría, Heiður Nanna og Breki tóku sig vel út í réttum :)
Andri ánægður með fenginn :)
Skildi þetta vera lífgimbur?
Einhver þarf að sjá um bókhaldið :)
Það er ómetanlegt að hafa góða aðstoð í réttunum, Nanna systir Bigga og Andri tengdasonur hennar létu ekki sitt eftir liggja :)
Stundum er gott að hjálpast að.
Látum þetta duga í bili, gaman að sjá hveru margir eru duglegir að fylgjast með okkur hér á síðunni, það hvetur mann til að setjast við tölvuna og skrifa fréttir: af daglegu amstri.
Lifið heil!